Píratar syrgja fallinn félaga

Róbert Ingi Douglas upplýsingafulltrúi Pírata minnast félaga síns Jónasar Ingólfs Lövdal í fallegri minningargrein í dag.

Jónas kom inn í starf Pírata árið 2015. Hann sat í framkvæmdaráði Pírata 2016-17 og árið 2019, þar sem hann var tengiliður framkvæmdaráðs við starfsfólk ásamt því að leiða mannauðshóp Pírata. Hann var í stjórn Pírata í Norðvesturkjördæmi og tók mikinn þátt í að móta starfið í því kjördæmafélagi. Hann lést 1. júlí síðastliðinn.

„Óhætt er að segja að Jónas hafði mikil áhrif á mótun skipulags og innra starfs flokksins, enda var skipulagstækni mikil ástríða hjá honum. Jónas tók að sér fjölmörg verkefni sem tengdust skipulagi flokksins, hann hannaði móttökukerfi grasrótarinnar, tók þátt í nýliðaráði og innanhúsnefnd, fundarstjórn framkvæmdaráðs, skipulagi aðalfundi og skipulag kosningabaráttunar 2016."

Píratar nutu góðs af listrænum hæfileikum hans.

„Jónas var hæfileikaríkur myndlistarmaður, grafískur hönnuður og ljósmyndari. Flokkurinn naut góðs af þeim hæfileikum og þeirri hugmyndaauðgi sem hann bjó yfir, þar sem hann vann og hannaði fyrir samfélagsmiðla, aðalfundi og fréttablað flokksins."

Góður félagi sem allir gátu leitað til.

„Jónas var réttsýnn, hann hafði góðan skilning á félagslegu starfi og mannlegum samskiptum. Hann var iðulega í óformlegu sáttamiðlunarhlutverki innan flokksins ef ágreiningur myndaðist milli félagsfólks. Hann var alltaf reiðubúinn til að miðla málum og lagði sig fram við að skilja afstöðu allra. Hann var aldrei með fyrirfram mótaðar skoðanir á fólki og var ótrúlega duglegur að tala við alla. Jónas þurfti ekki að olnboga sig áfram, það var leitað til hans."

„Sjálfur kynntist ég Jónasi fyrir rúmlega ári síðan þegar hann var kosinn í framkvæmdaráð Pírata í annað sinn. Þá var ég nýr starfsmaður að sjá um þær kosningar. Á kynningarfundi frambjóðenda tók ég sérstaklega eftir því hversu margir úr flokknum gáfu sig á tal við Jónas og lýstu ánægðu sinni að hann væri kominn aftur í virkt starf og að hans hefði verið saknað í grasrótarstarfinu. Ég fann þó mest fyrir því að fólk saknaði hans, vináttu hans."

Hans verður saknað í starfi Pírata og sem vinar.

„Ég er ekki einn um að minnast með söknuðu langra símtala frá honum, símtöl sem áttu oft að vera stutt og tengd vinnunni urðu ávalt lengri og tengd vináttunni. Þessi símtöl byrjuðu nær alltaf á umhyggju hans um vellíðan manns í starfinu, stundum um skipulag næsta vinnudags, en alltaf þróaðist símtalið yfir í langar og djúpar samræður um allskonar viðfangsefni og áhugamál, myndlist, ljósmyndun, hönnun, kvikmyndir, lífræði, plöntufræði, kenningar Myers-Briggs, NBA deildin og jafnvel stjórnmál. Þarna þróaðist vináttan okkar. Hans er saknað í starfinu, hans er saknað sem vinur."