Halldór Auðar Svansson, borgarfulltrúi pírata í Reykjavík segir Pírata munu setja sem úrslitaskilyrði fyrir samstarfi með öðrum flokkum eftir næstu alþingiskosningar að afgreidd verði ný stjórnarskrá og að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
Þetta kemur fram í samtali Halldórs Auðar við Ólafana í samnefndum þætti á Hringbraut í kvöld, en í upphafi þáttarins ræða hagfræðingarnir Arnarson og Ísleifsson um sjónarmið varðandi uppgjör slitabúa bankanna og fyrirhugaða sölu á bönkunum.
Ólafarnir eru frumsýndir klukkan 21:30 í kvöld og endursýndir strax klukkan 23:30.