Píratar eru að sópa upp svo miklu af vinstra fylginu í íslenskri pólitík að þeir skilja félagshyggjuflokkana eftir svo smáa og veika að þeir mælast varla lengur með mann inni á þingi.
Þetta er niðurstaða nýjustu fylgiskönnunarinnar í Fréttablaðinu í dag en þar sést jafnframt að til eru að verða tveir turnar í íslenskum stjórnmálum; til hægri er það Sjálfstæðisflokkurinn sem bætir við sig og er studdur af 29,5% kjósenda samkvæmt könnuninni og Píratar, sem enn eru að bæta við sig og eru nú komnir með kunnuglegar fylgistölur Sjálfstæðisflokksins frá því á blómaskeiði hans á tíunda áratug síðustu aldar, en kapteinninn og hans lið er nú með 37,5% fylgi.
Björt framtíð mælist ekki lengur með mann inni á þingi, enda segjast aðeins 3,3% kjósenda styðja þennan unga, miðsækna félagshyggjuflokk - og þá ríða hinir félagshyggjuflokkarnir ekki feitum hesti heldur frá skoðanakönnun Fréttablaðsins, VG mælist með 7,3% og Samfylking með 11,1%.
Loks er það Framsókn sem fékk nálega fjórðung atkvæða í síðustu alþingiskosningum. Maddaman nýtur sín engan veginn í stjórnarsamstarfinu með Sjálfstæðisflokknum og uppsker í engum takti við hann, fær núna 8,5%.