Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfastæðisflokksins gagnrýnir Pírata harðlega á Facebook-síðu sinni og segir þá meðal annars samansafn af rótlausum kennitöluflökkurum í pólitík.
Þingmaðurinn birti stöðuuppfærsluna í gærdag um það leyti sem Píratar voru að klára aðalfund sinn sem stóð yfir um helgina: \"Undarleg viðkvæmni í gangi gagnvart Pírötum,\" skrifar Brynjar og bætir við : \"Einhverra hluta vegna er þetta eini stjórnmálaflokkurinn sem ekki má gagnrýna. Þegar bent er á að flokkurinn er að miklu leyti samansafn rótlausra kennitöluflakkara í pólitík ætlar allt um koll að keyra hjá sama fólkinu og þykir allt í lagi að saka aðra stjórnmálamenn um spillingu, frændhygli, sérhagsmunagæslu og þaðan af verra.“
Brynjar er ekki eini þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem lætur Pírata heyra það þessa dagana. Formaður flokksins sakði kaptein Pírata um ístöðuleysi í viðtali um helgina og líkti honum þar við veifiskata. Brynjar er á sömu nótum - og er greinilegt að stjórnarliðum er ekki skemmt vegna uppgangs Píratanna, sem fara nú með himinskautum þótt stefnan sé engan veginn skýr:
\"En bæði stefna og menn skipta máli við stjórn landsins,\" skrifar Brynjar: \"Sundurlaus hópur með illa ígrundaða stefnu í mestu hagsmunamálum þjóðarinnar er ekki líklegur til að ná árangri. Það nefnilega skiptir máli hverjir og hvernig stjórnað er. En það hefur alltaf verið auðvelt að selja frasa um aukið lýðræði, borgarleg réttindi, arðinn til þjóðarinnar og almenna góðmennsku. Og bíta svo höfuðið af skömminni með því að saka aðra um populisma.“