Píratar og systrasamstaðan

Prófkjör Pírata eru í undirbúningi og margir sem stíga fram og vilja fylla forystusveit flokksins fyrir kosningarnar í haust. Fámennt prófkjör var haldið í Norðaustur kjördæmi og varð nokkur vandræðagangur í kringum það, til dæmis var tímasetningum breytt og fleira. Byrjunin var því brösuleg.

Píratar hafa hins vegar á sér þá áru að vera velmeinandi og friðelskandi fólk sem drifið er áfram að hugsjón um tjáningarfrelsi og mannréttindi ofar persónulegum metnaði til valda. Stjórnmálaflokkar hverfast þó alltaf um völd og áhrif og Píratar eru engin undantekning þegar allt kemur til alls. Hringbraut býður til spjalls við þá sem vilja leiða framboðslistana, meðal annars frambjóðanda sem hefur eftir deilur hrökklast úr starfi formanns Framkvæmdaráðsins. Deildur sem virtust snúast um  hugmyndafræði Píratar og hver færi með formleg völd í flokknum. Enginn flokkur verður átakalaus þegar á reynir. Þetta reyndu Kvennalistakonurnar líka á sínum tíma sem buðu fram sem afl þar sem sameining og samhugur átti að ríkja – aðallega systrasamstaða. Það gekk ekki heldur til lengri tíma. Sumir kenndu R-lista samstarfinu um, aðrir hugmyndafræðilegum klofningi meðal kvennanna. Það er svo sem heldur ekkert að því að fólk takist á um leiðir og stefnur svo lengi sem það er gert á þann máta að fólk virði skoðanir hvors annars og leiti friðsamlegra leiða til að sætta sjónarmið og það á málefnalegan hátt. Alveg eins og bæði Píratar og Kvennalistinn vildu framar öllu.