Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður pírata segir um tillögur stjórnarskrárnefndar að píratar telji sig óbundna af þeim þrátt fyrir að hafa átt fulltrúa í nefndinni.
Helgi Hrafn segir að ákvæði tillögunnar um þjóðaratkvæðagreiðslur séu ekki aðeins ólýðræðislegar heldur beinlínis andlýðræðislegar.
Þetta kom fram í samtali Helga Hrafns við Ólafana í þætti þeirra á Hringbraut í vikunni, en þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar, auk þess sem hann verður endursýndur í dag og um helgina.
Þættir Ólafanna eru vikulega á dagskrá Hringbrautar og brjóta þjóðmálin til mergjar.