Fylgi Pírata hefur aldrei verið meira. 43% styðja Pírata skv. nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Fylgið tekur stökk frá síðustu könnun og nálgast hreinan meirihluta. Til þess ber að líta að óánægja með aflandsmál og skattaskjólsumræðu þriggja ráðherra kann að hafa tímabundin áhrif á stökk Pírata. Athygli vekur þó að hinir stjórnarandstöðuflokkarnir bæta ekki verulegu fylgi við sig en hlutfallslega braggast Björt framtíð nokkuð.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 21,6% og missir 6% milli kannana. Krafa hefur komið upp um afsögn bæði Bjarna Benediktssonar og Ólafar Nordal vegna aflandsmála.
Framsókn hrynur hlutfallslega langmest allra stjórnmálaflokka, fer úr 7,9% úr 12,8% fyrir mánuði.
Vinstri grænir standa í stað en Samfylking bætir við sig tveimur prósentustigum milli mánaða, báðir flokkar með 10-11%.
Björt framtíð hmælist nú með tæp 4% og er í sókn.
Mikill meirihluti aðspurðra í skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 vill að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Ólöf Nordal innanríkisráðherra segi af sér. 69% vilja Bjarna burt en 66% Ólöfu.