Píratar nálgast 40%, stjórnin dalar

Píratar bæta enn við sig fylgi, nálgast nú 40% múrinn, en stjórnarflokkarnir dala aðra könnunina í röð ef marka má nýjustu fylgiskönnun MMR sem gerð var á tímabilinu 12. til 20 janúar.

Breytingar á fylgi flokka voru þó í öllum tilfellum innan vikmarka frá síðustu könnun. Þannig mældist fylgi Sjálfstæðisflokksins 19,5% borið saman við 20,6% í síðustu könnun (18. desember) og 22,9% í könnuninni þar áður (7. desember). Fylgi Framsóknarflokksins mældist 10,0% borið saman við 11,5% í síðustu könnun og 12,9% í könnuninni þar áður. Fylgi Vinstri-Grænna mældist nú 12,5% borið saman við 11,4% í síðustu könnun og 9,4% þar áður. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,4% borið saman við 12,9% í síðustu könnun og 9,4% þar áður. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist 4,4% nú en 5,3% í síðustu könnun og 4,6% þar áður. Fylgi annarra flokka mældist um og undir 1%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 30,1% en mældist 31,2% í síðustu mælingu (sem lauk þann 18. desember s.l.) og 35,6% í könnuninni þar áður  sem lauk 7. desember á síðasta ári.

Karlar voru líklegri en konur til að styðja Pírata en konur voru hinsvegar líklegri en karlar til að styðja Vinstri-græna og Bjarta framtíð. Þannig sögðust 44% karla styðja Pírata, borið saman við 29% kvenna. 18% kvenna sögðust styðja Vinstri-græn, borið saman við 8% karla og 7% kvenna sögðust styðja Bjarta framtíð, borið saman við 2% karla.

Yngra fólk var líklegra til að styðja Pírata en eldra fólk, hinsvegar var eldra fólk líklegra til að styðja Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna en yngra fólk.

Píratar laða til sín fylgi frá öllum flokkum frá síðustu kosningum. Þannig sögðust 60% þeirra sem kusu Bjarta framtíð í síðustu kosningum nú styðja Pírata, 30% þeirra sem kusu Samfylkinguna styðja nú Pírata, 26% þeirra sem kusu Framsóknarflokkin styðja nú Pírata, 19% þeirra sem kusu Vinstri-græn styðja nú Pírata og 10% þeirra sem kusu Sjálfstæðisflokkinn styðja Pírata í dag.