„sami rassinn undir þessu öllu saman“

Lilja Magnúsdóttir, fyrrum meðlimur kjördæmisráðs Pírata í Norðvesturkjördæmi og fyrrum varamaður í stjórn Pírata á Vesturlandi hefur sent á fjölmiðla langt bréf þar sem hún lýsir fautaskap og átökum kringum prófkjörið í NV kjördæmi.

Lilja lýsir því hvernig Píratar á Vesturlandi og á Vestfjörðum hafi ekki náð saman um prófkjörsreglur. Píratar á Vesturlandi vildu takmarka kosningarétt við félagsmenn í kjördæminu á meðan Vestfirðir vildu opið prófkjör fyrir alla félagsmenn á landsvísu.

Þrautalendingin segir Lilja hafi orðið að hafa prófkjörið lokað en í staðinn opna staðfestingarkosningu, þar sem listinn yrði staðfestur eða felldur af skráðum Pírötum um landið allt.

Lilja segir Birgittu Jónsdóttur, þingmann hafa farið hamförum á leynilegri síðu flokksins þar sem hún sagist vita um marga sem hefðu slæmar sögur af Þórði Péturssyni sem lenti efstur á listanum. Áróður framámanna í flokknum hafi orðið mikill um að hafna bæri listanum. Lilja nefnir þó einungis Birgittu af þingflokknum. Kosningastjórinn hefði líka farið hamförum í að koma Gunnari Ingibergi Guðmundssyni ofar á listann og fá nýja kosningu. Áróðurinn hafi verið gengdarlaus á facebooksíðum flokksins til að fella listann.

Listinn var felldur, kæra vegna smölunar barst og „símhringingar fóru að berast“, skrifar Lilja.

Hún skrifar enn fremur: „Símtöl héldu áfram að berast um allt land. Fólk var beðið um að fella listann og ýmiskonar rökum slengt fram, efstu menn væru ekki þekktir innan grasrótarinnar í Reykjavík, það væri ekki nógu margar konur á listanum og það þyrfti að rétta við hlut Vestfirðinga. En fyrst og fremst var sú ástæða nefnd að smölun væri ekki liðin innan flokksins. Allavega ekki úr þeirri átt sem talin var hafa verið í baráttu efsta manns á listanum.“.

Í seinni lotu kosninganna sem voru á landsvísu hafi áróðurinn herst til að koma  Gunnari Ingiberg upp um og náði hann öðru sætinu í seinni kosningunni. Lilja bendir á að Gunnar sé ekki ættaður af Vestfjörðum heldur Stykkishólmi og hafi búið í Kópavogi en vinni fyrir vestan. Annar frambjóðandi sé hins vegar borinn og barnfæddur Ísfirðingur.

Í lok bréfsins skrifa Lilja: „Þá eru víst líka til flokkseigendur Pírata eins og hjá öllum hinum stjórnmálaflokkunum, það vitum við núna sem höfum komið að þessu prófkjöri í kjördæminu okkar. Þegar upp er staðið er sami rassinn undir þessu öllu saman“.