Píratar fara með himninskautum í íslenskri pólitík þessi dægrin og er það staðfest í hverri skoðanakönnuninni af annarri. Í þeirri nýjustu, sem MMR kynnir í dag, hafa þeir bætt við sig miklu fylgi frá því í síðustu könnun, sem lauk 19. febrúar síðastliðinn og mælast nú með mest fylgi allra flokka á Íslandi. Munurinn á þeim og Sjálfstæðisflokknum er að sögn MMR innan tölfræðilegra vikmarka.
Fylgi Pírata mældist nú 23,9%, borið saman við 12,8% í síðustu könnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,4%, borið saman við 25,5% í síðustu könnun. Stuðningur við ríkisstjórnina dalar, mældist nú 33,4% en mældist 36,4% í mælingunnu í síðasta mánuði.
Könnun MMR er enn ein staðfesting á fylgishruni Framsóknarflokksins. Hann mælist nú með 11% fylgi, prósentustigi minna en í febrúar. Fylgi Samfylkingarinnar þokast úr 14,7% í 15,5%. VG dalar úr 12% í 10,8% og sá flokkur sem nú mælist minnstur í fylgiskönnuninni, Björt framtíð, fellur úr 16,8% í 10,3% sem er mesta fylgishrunið í þessari könnun MMR sem gerð var 13. til 18. mars.
Sjá einnig leiðara hér að neðan: Heilbrigði stjórnmál.