Píratar kunna að hríðfalla í fylgi

Ólafur Þ. Harðarson prófessor við HÍ, Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata og Brynhildur Pétursdóttir þingmaður BF sátu fyrir svörum í fréttaskýringaþættinum Kvikunni á Hringbraut á mánudagskvöld, en sá fyrstnefndi er ekki frá því að Píratar kunni að hríðfalla í fylgi.

Þáttinn má sjá hér á hringbraut.is, en þar leitar prófessorinn svara við þeirri spurningu hvað útskýri gjörbreytt pólitískt landslag samkvæmt fylgiskönnunum hér á landi. Ólafur segir að þótt sögulega sé markvert að nýr flokkur eins og Píratar hafi fengið  gríðarlegt fylgi svo lengi skv. mælingum, sé af og frá að hægt sé að spá því að fylgi Pírata muni haldast. Fylgið gæti snarminnkað á þeim tíma sem sé til kosninga. Ólafur telur að með því að haka við Pírata í skoðanakönnum séu landsmenn að lýsa andófi við ríkjandi stjórnmálaástand og sé ekki bundið við Ísland.

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, og Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, sitja einnig fyrir svörum í þættinum í kvöld. Birgitta hafnar því að róttækni Pírata skýri aukið fylgi heldur fremur útvötnun lýðræðis. Krafa Pírata sé að brjóta niður kerfi sem ekki vinni lengur fyrir fólkið.

Brynhildur Pétursdóttir, BF, segir fátt um skýringar innan úr herbúðum BF á fylgishruninu. Hún hafnar því að óbreyttu að það myndi leysa stöðuna að sameinast Samfylkingunni. Vinnubrögð BF og Samfylkingar séu of ólík til þess, auk þess sem BF standi hægra megin við Samfylkingu.

Kvikan á Hringbraut er frumsýnd öll mánudagskvöld klukkan 21.30.