Eina kjördæmið á landinu sem Píratar hafa ekki tryggt sér stöðu sem stærsta stjórnmálaaflið samkvæmt skoðanakönnun Gallup er Norðvesturkjördæmi, en í því sambandi rifja menn upp færslu Birgittu kapteins Jónsdóttur á fésbók hennar í maí síðastliðnum; \"Skagafjörður er Sikiley Íslands.“
Tilefnið var úttekt í Stundinni þar sem spurt var hvort ákvörðun Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra um einhliða viðræðuslit við ESB mætti skoða í samhengi við hagsmuni Kaupfélags Skagfirðinga og íbúa Skagafjarðar. Gunnar Bragi er oddviti framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi.
Sikileyjarlíking Birgittu vakti mikil viðbrögð í skagfirsku héraði, enda tengsl eyjunnar við mafíuna alkunn. Byggðarráð sveitarfélagsins Skagafjarðar fór fram á opinbera afsökunarbeiðni frá Birgittu. Birgitta svaraði því kalli og skrifaði m.a.: \"Elsku Skagafjöður og allt fólkið sem þar býr: Fyrirgefðu!“
Framsóknarflokkurinn á sitt sterkasta vígi í Norðvesturkjördæmi samkvæmt nýrri könnun Gallup. Fylgi Framsóknarflokksins mælist 28% í NV-kjördæmi á sama tíma og landsfylgi Framsóknar er 11% og aðeins 5 til 7% í Reykjavík.
Píratar eru með um 20% fylgi í Norðvesturkjördæmi. Af öðrum niðurstöðum í einstökum landshlutum má nefna 20% fylgi VG í Norðausturkjördæmi samkvæmt könnun Gallup.