Þetta skrifar ritstjóri Fréttablaðsins í dag í leiðara í blaðinu. Ritstjórinn skrifar að Píratar virðast hreinlega þurfa að fórna allri sinni ásýnd til að komast í ríkisstjórn. Þvert á fyrirheit áforma Píratar að setjast í ríkisstjórn og fórna því loforðum um aðkomu almennings að ákvörðunum sem hann varðar um. Enginn af flokkunum fjórum þurfa hins vegar að fórna eins miklu og Píratar - hvorki meira né minna en allri sinni ásýnd. Nú er viðkvæmur tími í stjórnarmyndunarviðræðunum og lítið þarf til svo þær fari út af sporinu. Meirihlutinn er naumur - bara eitt þingsæti.
Spyrja má hvað vakir fyrir Pírötunum Birgittu Jónsdóttur og Birni Leví Gunnarssyni. Bæði hafa sagt hluti sem varla geta talist heppilegir fyrir Pírata. Birgitta með skordýratali sínu og Björn Leví með því að setja alls kyns fyrirvara. Tímasetning getur tæpast talist góð nema þá að þetta séu skipulegar Píratasjónhverfingar en ekki Píratastakkaskipti. Píratar hafi þá ekkert meint með því að fara í þessar stjórnarmyndunarviðæður. Þær séu til málamynda. Heimildir Hringbrautar telja hæpið að Píratar vilji í starfhæfa ríkissjórn þar sem áhrif þeirra verða nánast engin.