Þingflokkur Pírata myndi rúmlega áttfaldast, færi úr þremur þingmönnum í 25 ef niðurstaða kosninga yrði í samræmi við skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2.
Frá þessu greinir Fréttablaðið í dag.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 20 þingmenn kjörna og bætti við sig einum. VG fengi sjö þingmenn, Framsóknarflokkurinn sex menn kjörna, Samfylkingin fimm en Björt framtíð engan. Þetta myndi þýða miklar breytingar á þingmannafjölda flokkanna ef Sjálfstæðisflokkur er undanskilinn.
„Miðað við niðurstöðurnar eiga Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar helst möguleika á myndun tveggja flokka ríkisstjórnar. Sú stjórn myndi þá hafa 45 þingmenn að baki sér. Píratar ættu líka möguleika á að mynda tveggja flokka stjórn með VG. Sú ríkisstjórn hefði þá einungis 32 manna meirihluta á 63 manna þingi,“ segir m.a. í umfjöllun Fréttablaðsins.