„Þótt Píratar hafi haft eitt og annað áhugavert fram að færa og hafi gert umræðuna áhugaverðari, þá finnst mér í auknum mæli gæta hroka hjá þeim,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra í Morgunblaðinu í dag.
Þegar formaður Framsóknarflokksins er spurður um orð Ástu Guðrúnar Helgadóttur, þingmanns Pírata, að engin mál fari áfram á Alþingi án þess að kynnt verði hvenær verði kosið, svarar hann:
„Það hefur ekki skánað eftir að þeir fóru að telja sig talsmenn almennings og rödd fólksins. Það er reyndar einkenni flokka á jaðrinum í stjórnmálum. Það er hættuleg þróun hjá Pírötum að þeir fari að ímynda sér að það sé þeirra að boða kosningar.“ Þannig að þú vilt alveg eins halda kosningar næsta vor eins og upphaflega var áætlað? „Það fer eftir því hvort við náum að klára þau verkefni í haust sem var lagt upp með eða ekki.“