Litlar breytingar hafa orðið á fylgi stjórnmálaflokkanna á síðustu vikum að því er fram kemur í nýrri fylgiskönnun MMR sem gerð dagana 26. október til 4. nóvember 2015. Björt framtíð næði ekki manni á þing samkvæmt henni.
Píratar mælast sem fyrr stærstir, eru nú með 35,3% fylgi sem er innan vikmarka frá síðustu tveimur könnunum sem gerðar voru frá 16. október og 24. september 2015.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist 23,7% borið saman við 21,7% í síðustu könnun þann 16.október 2015. Fylgi Framsóknarflokksins mældist 10,8% borið saman við 10,4% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,5% borið saman við 11,3% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-Grænna mældist nú 9,9% borið saman við 11,8% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist 4,6% borið saman við 6,5% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 1%.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 33,1% en mældist 31,4% í síðustu mælingu.