Fylgi Pírata eykst um tvö prósentustig milli mánaða en fylgi annarra flokka breytist lítið sem ekkert, eða á bilinu 0-1,2 prósentustig.
Ríflega 35% kysu Pírata ef gengið væri til kosninga í dag, rösklega 24% Sjálfstæðisflokkinn, 12% Framsóknarflokkinn, nær 11% Vinstri græn, rúmlega 9% Samfylkinguna og tæplega 4% Bjarta framtíð. Nær 5% segjast myndu kjósa aðra flokka en nú eiga sæti á Alþingi. Þetta kemur fram í glænýrri könnun Gallup.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata segir um fylgismælinguna: \"Við erum þakklát - sér í lagi á tímum þar sem við erum að vinna með vaxtaverkina okkar útfrá einlægum vilja til að koma sem sterkari heild til að vera góð fyrirmynd fyrir alla þá sem treysta okkur.\"
Næstum 9% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og nær 11% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.
Stuðningur við ríkisstjórnina eykst um rúmt prósentustig milli mánaða en tæplega 38% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.
Athygli vekur að væringar meðal Pírata sem þó virðast nú á undanhaldi m.a. eftir aðstoð vinnustaðarsálfræðings hafa ekki neikvæð áhrif á fylgið en aðeins einu sinni hefur Gallup mælt einS mikið fylgi meðal þeirra. Þá hefur uppgjör formanns Samfylkingar og ákvörðun um að flýta formannskosningu engin jákvæð áhrif á fylgismælingu þess flokks. Björt framtíð hefur aldrei mælst með eins lítið fylgi og nú.