Píratar auka enn við sig

Enn og aftur mælast Píratar stærsti stjórnmálaflokkurinn í mánaðarlegri könnun MMR.  Sjálfstæðisflokkurinn bætir heldur við sig fylgi, en Framsóknarflokkurinn tapar enn og mælist nú næstminnsti flokkurinn eftir á Bjartri framtíð sem virðist nú í frjálsu falli.

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 15. til 20. maí 2015. Fylgi Pírata mældist nú 32,7%, borið saman við 32,0% í síðustu könnun og mælast með mest fylgi allra flokka á Íslandi.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,1%, borið saman við 21,9% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,1, borið saman við 10,7% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 10,4%, borið saman við 10,8% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 8,6%, borið saman við 10,8% í síðustu könnun og fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 6,3%, borið saman við 8,3% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.

Yngra fólk var líklegra til að styja Pírata en eldra fólk, hinsvegar var eldra fólk líklegra til að styðja Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna en yngra fólk.

Píratar laða til sín fylgi frá öllum flokkum frá síðustu kosningum. Þannig sögðust 52,5% þeirra sem kusu Bjarta framtíð í síðustu kosningum nú styðja Pírata, 32,4% þeirra sem kusu Framsóknarflokkin styðja nú Pírata, 23,3% þeirra sem kusu Vinstri-græn styðja nú Pírata, 18,7% þeirra sem kusu Samfylkinguna styðja nú Pírata og 14,9% þeirra sem kusu Sjálfstæðisflokkinn styðja Pírata í dag.

Karlar voru líklegri en konur til að styðja Pírata en konur voru hinsvegar líklegri en karlar til að styðja Vinstri-græn og Bjarta framtíð. Þannig sögðust 37,4% karla styðja Pírata, borið saman við 26,3% kvenna. 16,5% kvenna sögðust styðja Vinstri-græn, borið saman við 5,9% karla og 10,5% kvenna sögðust styðja Bjarta framtíð, borið saman við 3,2% karla.