Píratar aftur á toppinn

Píratar mælast á ný með mest fylgi í nýrri fylgiskönnun MMR, sem birt var í dag. Vinstri græn, sem höfðu verið á miklu flugi, missa nú um fimm prósentustig. Framsókn og Samfylking mælast jafn stór, eða jafn lítil, með 8,4 og 8,3 prósent. Sjálfstæðisflokkur missir fylgi milli kannanna.

Viðreisn eykur fylgi sitt umtalsvert, fer úr 6,7 prósentum í 9,4 prósent. Björt framtíð fengi 3,9 prósent.