Píratar afneita össuri

Eftir að Össur Skarphéðinsson sagði að enginn munur sé á Pírötum og Samfylkingu hafa Píratar keppst við að afneita Össuri. Óvíst er hvað Össuri gekk til með samlíkingunni, en víst er að hann hreif ekki Pírata með henni.

Egill Helgason gerir þessu ágæt skil á sínu fína bloggi og segir meðal annars: „um sleikjuhátt en líka um að vilja sundra Pírötum. Sumir gerast mjög orðljótir. Meðfram upphefjast miklar vangaveltur um hvort Píratar séu vinstri eða hægri, frjálshyggja eða félagshyggja, Össur segist sjálfur hafa hrifist af anarkismanum innan Píratahreyfingarinnar en þeir virki nú meira miðaldra og ráðsettir.“