Píratar ætla sér í ríkisstjórn árið 2021: ekki í pólitík til að vera með – „erum við með til þess að vinna“

Aðalfundi Pírata lauk fyrr í dag en hann var haldinn yfir helgina í sal Garðyrkjufélags Íslands. Var dagskrá þétt frá morgni til kvölds. Var fundurinn átakalaus, mikil stemmning og almenn ánægja meðal Pírata með aðalfundinn. Fundargestum var boðið að taka þátt í ýmsum smiðjum, eða vinnuhópum með það að markmiði að efla og skerpa á ýmsu í starfi Pírata. Einnig var kynning á félagsstarfi, bókhaldi, kosið í stjórnir og leynigestur kynntur svo fátt eitt sé nefnt. Þá fluttu nokkrir þingmenn Pírata ræður á fundinum. Helgi Hrafn Gunnarsson var í þeim hópi og hóf ræðu sína á að segja fundargestum að hann vildi ræða um framtíðina. Bætti hann við að hann hefði að undanförnu velt fyrir sér framtíð Pírata og hvaða tækifæri væru fyrir hendi. Niðurstaða Helga var að til að eiga tækifæri á að hrinda stefnumálum flokksins í framkvæmd yrðu Píratar að „sigra kosningar.“ Helgi Hrafn sagði að hingað til hefði árangur Pírata verið eitt lítið skref í einu. Hann bætti við:

„Við höfum náð ákveðnum árangri, sér í lagi með því að breyta huga og hjörtum landsmanna, sem er kannski stærsti slagurinn.“

Tvö af stóru málum Pírata hafa verið afglæpavæðing vímuefna og ný stjórnarskrá. Sagði Helgi að tilfinning hans væri sú að koma þessum málum áfram hefði gengið heldur hægt. Ástæðan væri einfaldlega sú að Píratar væri í minnihluta á þingi. Helgi bætti við:

„Þannig að við verðum að mínu mati að leggja allan fókus á það í næstu kosningum að komast í meirihluta. Með hverjum veit ég ekki hér og nú, ég veit með hverjum ekki,“ sagði Helgi og uppskar hlátur fundargesta.  „Mér finnst að það eigi að vera fókusinn okkar,  að ná mjög miklum árangri í næstu kosningum.“

Þá sagði Helgi að Píratar þyrftu að fara strax að huga að næstu kosningum sem fara fram árið 2021 og þyrfti að finna sterka og hæfileikaríka frambjóðendur á alla lista og ekki aðeins í efstu sætin.

Helgi kvaðst einnig vongóður um, ef litið væri á næstu tvö ár sem kosningabaráttu, að góður árangur muni nást í kosningunum árið 2021. Hann bætti við að það þyrfti að halda áfram að byggja upp flokkinn og hvernig væri starfað innan hans. Helgi sagði:

„Við erum búin að sína að við séum komin til að vera. Við höfum gengið í gegnum allskonar áskoranir í gegnum tíðina af mörgum toga. Við höfum staðið það allt af okkur. Við höfum gert það vegna þess að við erum með alvöru málstað sem fólk trúir á og vill ná í gegn. Það er styrkur okkar.“

 Þá endaði Helgi ræðu sína á þessum orðum:

„Ef við höldum áfram á þessari braut náum við þangað léttilega. Við þurfum bara passa að halda fókus á það í næstu alþingiskosningum og sveitastjórnarkosningum líka, þá erum við ekki með til þess að vera með. Þá erum við með til þess að vinna.“