Nú eru einungis seldar piparkökupersónur í skoska löggjafarþinginu, en ekki piparkökukarlar en eins og áður. Heitinu var breytt í viðleitni til að útrýma kynjamisrétti.
Nafnabreytingin í kaffistofu skoska þingsins kemur í kjölfar könnunar sem sýndi að 30 prósent kvenna sem starfa á þinginu hafa upplifa kynferðislega áreitni á vinnustað.
Jafnréttisfulltrúi skoska Íhaldsflokksins segir þetta tilgangslaust látbragð. „Skoska þingið hlýtur að hafa merkilegri hluti á sinni könnu en að velta fyrir sér hvað piparkökukarlar eru kallaðir. Þetta er algjörlega tilgangslaust látbragð sem gerir lítið úr raunverulegum málefnum kynjamisréttis,“ er haft eftir jafnréttisfulltrúanum Annie Wells.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/frettir/piparkoekukarlar-bannair-fyrir-kynjajafnretti