Piltur látinn eftir umferðarslys

Pilturinn sem slasaðist alvarlega í umferðarslysi á Holtavörðuheiði sl. laugardag er látinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi.

Tildrög slyssins voru þau að fólksbíll á norðurleið fór útaf þjóðvegi nr. 1 á Holtavörðuheiði. Farþegi í aftursæti, sem ekki var í bílbelti, kastaðist út úr bifreiðinni er hún fór nokkrar veltur. Hann var fluttur á gjörgæsludeild Landspítalans þar sem hann var síðar úrskurðaður látinn. Pilturinn var á átjánda aldursári. Ökumaður og farþegi í framsæti sluppu með minniháttar meiðsli.

Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.

Málið er enn til rannsóknar hjá lögreglunni á Vesturlandi.