Í gærkvöldi gekk piltur í annarlegu ástandi berserksgang í Árbæjarhverfi í gærkvöldi. Pilturinn er sagður hafa elt hóp af börnum með hníf og ógnað þeim. Fréttablaðið greinir frá.
Elsa Margrét Víðisdóttir, íbúi í Árbæ, greindi frá þessu á Facebook-síðu fyrir íbúa í Árbænum í gærkvöldi.
„Strákur í annarlegu ástandi elti syni mína og fleiri hér í Árbæ fyrr í kvöld, hann var með hníf og ógnaði þeim, þeir létu lögreglu vita og síðast þegar ég vissi var lögregla að leita hans. Synir mínir földu sig hér og þar þangað til hjálpin kom,“ segir Elsa Margrét.
Hún segir piltinn hafa elt syni hennar og fleiri börn um hverfið frá Árbæjarskóla að Höfðahverfinu. Elsa Margrét segist þakklát starfsmanni bílaþjónustunnar Kvikk á Vagnhöfða, þar sem synir hennar fengu að bíða uns hættan var liðin hjá.
„Vonandi fer lögregla að ná utan um þennan lýð sem virðist vera hér í hverfinu,“ bætir hún við.
Fyrir tveimur árum ógnaði karlmaður á fertugsaldri tveimur fjórtán ára piltum með hníf við Fylkisheimilið. Var maðurinn handtekinn og yfirheyrður eftir að piltarnir tilkynntu lögreglu um ógnunina.