Pillan niðurgreidd fyrir ungar konur

Hormónatengdar getnaðarvarnir munu frá og með áramótum falla undir lyfjagreiðsluþátttökukerfið fyrir konur undir tuttugu ára aldri. Það að pillan og hormónalykkjan verða niðurgreiddar. 

Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í gær en þar kom fram að árið 2021 sé ráðgert að verja um 20 milljónum króna í niðurgreiðslur á hormónalykkjunni fyrir konur sem þurfa á henni að halda af klínískum ástæðum, til dæmis vegna endómetríósu.  

Þá stendur til að verja um 50 milljónum króna til að lækka þak á árleg hámarksútgjöld einstaklinga vegna lyfjakaupa árið 2021. 

Meira á vef Stjórnarráðsins.