Einhvern tímann var það yfirlýst markmið Háskóla Íslands að verða einn af 100 bestu háskólum heims. Sennilega er svo enn því háskólastofnun hlýtur ætíð að setja sér göfug markmið. Hér skal þó ósagt látið hvort svokallaðir Píkudagar sem haldnir voru í háskólanum fyrir nokkrum dögum séu þáttur í því háleita markmiði þessarar merku stofnunar að komast í hóp þeirra 100 bestu. Framtakið hlýtur allavega að flokkast til akademískra skringilegheita, þótt ekki sé líklegt að háskólasamfélagið hafi meðvitað stefnt að því.
Ekki skal dregið úr þeirri staðreynd að karlmenn hafa stundum verið æði uppteknir af typpinu á sér. Sumir þeirra, dónakarlarnir alræmdu, hafa átt það til að senda kynningarmyndir af typpinu á sér til kvenna. Þeir lifa í þeim misskilningi að þannig geti þeir unnið sig í álit meðan staðreyndin er sú að karlmenn sem eru öllum stundum uppteknir af typpinu á sér þykja fremur hvimleið fyrirbæri. Í daglegu tali eru þeir oft kallaðir typpalingar.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/skodun/pikudyrkun/