Einar Gíslason, betur þekktur sem Einar í ET, er einn af helstu gestum bíladelluþáttarins Kíkt í skúrinn á Hringbraut í kvöld, en þar er á ferðinni margfróður gæðingur og dugnaðarrorkur.
Bíladella Einars er með eindæmum, enda hefur hann haft áhuga á öllu mótorkyns frá blautu barnsbeini. Í þessum þætti fáum við sjá hjá honum Cevrolet 1956 Pickup, en eðalvagnin at arna fannst á Akureyri og hefur þegar komið fólki saman. Einar vantaði eitt sinn bílstjóra til að ferja Pickupinn á milli landshluta. Sá sem Einar fékk í verkið tók upp konu á leiðinni sem vantaði far á sömu slóðir og leiðinni var heitið, og endaði þetta með því að hann kvæntist konunni einhverju síðar og eru þau enn gift og sæl. Þeta er sumsé Pickup sem kemur fólki saman.
Í þættinum er einnig farið í heimsókn í Vélaverkstæðið Kistufell sem var stofnað 1952 en er í dag rekið af Guðmundi Inga Skúlasyni. Kistufell hefur verið í rekstri af þremur kynslóðum í sömu fjölskyldu. Fyrirtækið sérhæfir sig í vélaviðgerðum á all flestum tegundum af vélum, slípun sveifarása, borun á vélablokkum, þrýstiprófun hedda auk almennra bílaviðgerða.
Loks bauð Sjónlag skúrsmönnum í forvitnilega heimsókn en þar var sjónin mín mæld og umsjármaður alls konar skoðun á sinni sjón og miðað við ástandið á sjónsviði hans þá hefði hann líklega ekki náð bílprófinu. Sérfræðingarnir á staðnum hafa ráð við því ef sjónin er farin að deprast hjá fólki.
Í þessari heimsókn gefst áhorfendum tækifæri til að sjá hvernig fólk sér í umferðinni án gleraugna þegar sjónin er farin að deprast. Þetta er mikilvægt efni núna í skammdeginu, þegar drunginn í desember er framundan og mikið að varast í umferðini, hvað þá ef fólk er með lélega sjón.
Kíkt í skúrinn er frumsýndur klukkan 20:30 í kvöld.