Pétur vill halda kórónu Kristjáns: „Sjálf­stæðis­mynd þjóðar styrkist ekki með því að af­baka söguna“

Pétur Georg Markan, bakþankahöfundur Fréttablaðsins, vill halda kórónu Kristjáns IX. Danakonungs á Alþingishúsinu og minnir Íslendinga á að gleyma ekki arfleið sinni.

„Ef orðið arfleifð er klofið í tvennt fáum við arf og leifð. Leifð er samstofna sögninni að lifa – arfur okkar er hluti af lífinu sem okkur er gefið til þess að vaxa og dafna – þjóð meðal þjóða,“ skrifar Pétur í bakþönkum dagsins.

Sjá einnig: Björn Leví búinn að útbúa þingsályktun: Danska kórónan verði tekin af Alþingishúsinu

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur útbúið tillögu til þingsályktunar þess efnis að danska kórónan verði fjarlægð af Alþingishúsinu við Austurvöll. Í greinargerð sinni skrifar Björn:

„Merki Kristjáns IX hefði að sjálfsögðu átt að vera löngu búið að fjarlægja. Tillagan útskýrir sig að öðru leyti sjálf þar sem Alþingi Íslendinga starfar ekki í umboði danskrar krúnu.“

Pétur segir þjóðina hafa sótt menningaráhrif og kenningar út um víða veröld og notið skjóls og næringar frá Danaveldi,

„Og þaðan varð heimurinn að leikvelli okkar – frá Kaupmannahöfn drógum við heiminn heim í kotið. Dönsk áhrif eru arfleifð okkar – ekki blettur í sögu sjálfstæðrar þjóðar. Dönsk arfleifð var meðal annars mennta -, menningar- og styrkforsenda þess að Ísland varð frjálst meðal þjóða,“ skrifar Pétur.

Hann telur að sá gjörningur að fjarlægja kórónu Kristjáns af Alþingishúsinu sé að gleyma því hver við erum og hvaðan við komum.

„Sjálfstæðismynd þjóðar styrkist ekki með því að afbaka söguna. Sjálfstæði þjóðarinnar mælist öðru fremur í styrk lýðræðis og alþjóðasamvinnu.“