Pétur rekinn úr Dúndurfréttum og Buff vegna ásakana

Tónlistarmaðurinn Pétur Örn Guðmundsson, betur þekktur sem Pétur Jesú, hefur verið rekinn úr hljómsveitunum Dúndurfréttum og Buff, en hann hefur hingað til verið söngvari sveitanna beggja.

Þetta var tilkynnt fyrr í dag á Facebook síðum hjlómsveitanna tveggja. Engar frekari skýringar voru gefnar á þessum tíðindum en samkvæmt heimildum Hringbrautar er Pétur maðurinn sem Elísabet Ormslev ræðir í viðtali við Fréttablaðið í dag.

Elísabet nefnir ekki nafn, en lýsir eitruðu sambandi við tónlistarmann sem hófst þegar hún var aðeins 16 ára. Hún segir hann hafa haldið sér í heljargreipum í áratug frá því hún var á fyrsta ári í menntaskóla.

Yfirlýsingar hljómsveitanna á Facebook eru stuttar. Á vegg Dúndurfrétta segir eingöngu: „Pétur Örn er ekki lengur hluti af Dúndurfréttum og verður ekki hluti af framtíðarverkefnum.“

Tilkynning Buff er einnig stutt: „Hljómsveitin Buff hefur slitið samstarfi við söngvara sveitarinnar.“