Persónuverndaryfirvöld geta sektað um háar fjárhæðir

„Persónuverndaryfirvöld fá í raun miklu rýmri sektarheimildir með þessum nýju persónuverndarlögum. Persónuvernd á Íslandi fær í fyrsta sinn heimildir til að leggja gríðarlega háar stjórnsýslusektir á fyrirtæki og aðila sem brjóta lögin. Þessar sektir geta numið í raun fjögur prósent af heildarársveltu móðurfélags eða 20 milljónum evra, sem eru 2,4 milljarðar króna,“ segir Alma Tryggvadóttir, persónuverndarfulltrúi Landsbankans.

Alma var gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 í gærkvöld. Alma, sem er fyrrverandi lögfræðingur hjá Persónuvernd og kennir kúrsa tengda persónuvernd á háskólastigi, ræddi þar mikilvægi persónuverndar.

Um mitt síðasta ár tók gildi ný og mun strangari persónuverndarlöggjöf í öllum aðildarríkjum ESB og EES. Tilgangurinn er að bregðast við tækniframförum í vinnslu persónuupplýsinga og að tryggja réttindi almennings.

Google sektað um sjö milljarða

Persónuverndaryfirvöld í Frakklandi sektuðu Google um háar fjárhæðir í síðustu viku eftir kvörtun frá frjálsum félagasamtökum. „Þetta er alvöru mál ef fyrirtæki eins og þessir stóru risar gerast brotlegir við persónuverndarlögin. Þetta var í raun svona fyrsta stóra sektin sem persónuverndaryfirvöld leggja á eftir tilkomu nýju laganna. Þetta voru um sjö milljarðar króna sem Google var sektað um. Það var fyrir brot á meginreglum laganna um gagnsæi, upplýsingagjöf til neytenda,“ segir Alma.

„Það þarf að veita á skýran og einfaldan hátt upplýsingar um það hvaða persónuupplýsingar þú vinnur, hvernig og í hvaða tilgangi. En líka, þá öfluðu þeir ekki nægilega skýrs samþykkis frá neytendum, sérstaklega fyrir persónubundnar auglýsingar sem er verið að búa til og sníða að neytendum,“ segir Alma einnig um sekt Google.

Aðspurð um hvort sektin muni hafa einhver áhrif fyrir Google segir Alma: „Ég held að það taki Google nokkra daga að vinna sig upp í sjö milljarða en vissulega sér maður að þarna eru frönsk persónuverndaryfirvöld að sýna tennurnar. Þetta er það sem koma skal ef fyrirtæki ætla ekki að virða þessi grundvallarlög.“

Vitundarvakning að skila sér

Evrópski persónuverndardagurinn var í gær og telur Alma hann mikilvægan. „Það er búið að vera að halda upp á þennan dag í góð 10 ár og það er mikilvægt að halda áfram að stuðla að vitundarvakningu um persónuvernd og friðhelgi einkalífs,“ segir Alma.

Hún telur vitundarvakninguna vera að skila sér og nefnir sem dæmi að kvörtunin vegna Google hafi borist sama dag og nýja persónuverndarlöggjöfin tók gildi. „Einstaklingar og hagsmunasamtök eru meðvitaðri um rétt sinn og þau bara fara í mál og kvarta yfir því sem eðlilega á að kvarta yfir. Við viljum öll betri neytendavernd. Fyrirtæki eiga að virða persónurétt einstaklinga og fara eftir þessu lögum ef þau ætla sér að vinna persónuupplýsingar um einstaklinga,“ segir Alma einnig.

Viðtalið við Ölmu í heild sinni er að finna hér: