Persónuupplýsingar er verðmæt söluvara

Umbylting hefur orðið í því hvernig hægt er að nálgast og safna persónuupplýsingum – og gera þær upplýsingar að verðmætri söluvöru.

Nýjar hættur og ógnir steðja að vinnslu og meðferð persónuupplýsinga. Málafjöldi Persónuverndar hefur nærri þrefaldast frá árinu 2002. Á árinu 2015 var stofnunin með 1.961 mál til meðferðar, segir á vefsíðu stofnunarinnar.

Ný Evrópulöggjöf sem kemur til framkvæmda á árinu 2018 mun verulega styrkja rétt einstaklinga til að hafa stjórn á persónuupplýsingum sínum. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar ræðir nýja ársskýrslu stofnunarinnar á Hringbraut á tíunda tímanum í kvöld.