Samkvæmt gildandi lögum um tekjuskatt skal í upphafi árs hækka persónuafslátt hvers skattgreiðanda í samræmi við hækkun vístölu neyslverðs næstliðna tólf mánuði. Á þessum grundvelli verður persónuafsláttur 646.739 kr. fyrir árið 2018 eða 53,895 kr. á mánuði. Persónuafsláttur einstaklinga hækkar um 11.859 kr. milli áranna 2017 og 2018 eða um 988 kr. á mánuði og nemur hækkunin 1,9%. Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars verða 151.978 kr. á mánuði að teknu tilliti til 4% lögbundinnar greiðslu í lífeyrissjóð.
Persónuafsláttur hækkar 2018
Fleiri fréttir
Nýjast