Katar er smáríki í Miða-Austurlöndum á nesi sem skagar út í Persaflóa út frá Arabíuskaganum. Katar á einungis landamæri að Sadís-Arabíu. Vegna olíuauðs er Katar eitt ríkasta land í heimi.
Þar er að finna þriðju stærstu jarðgaslindir og olíulindir í heimi. Þessar lindir gera Katar að einu auðugasta ríki heims og er landið talið vera þróaðasta land arabaheimsins.
Áformað er að halda þar heimsmeistarmótið í fóbolta árið 2022. Katar er furstadæmi sem arabíski Al-Thani ættbálkurinn hefur ríkt yfir frá miðri 19.öld. Landsmenn eru flestir í söfnuðu sunní múslimar en söfnuður shía múslimar er fjölmennur. Al-thani ættbálkurinn þykir hallur undir stjórnvöld í Íran.
Þau tíðindi hafa orðið að fjörgur arabaríki hafa nú slitið stjórnmálasambandi við Katar. Þessi ríki eru Sádía-Arabía og Egyptaland ásamt Persaflóafurstadæmunum Barein og Sameinðu arabíksu furstadæmnum.
Segja talmenns þessarar ríkja það gert vegna stuðnings stjórnvalda í Katar við hermdarverkamenn og samtök þeirra. Þessi ákvörðun kemur hratt á hæla heimsóknar Donald J Trump til Sadía-Arabíu er þá hitti forsetinn þorra ríkisoddvita múslimaríkja.
Stjórnmálaskýrendur benda á að þessi ákvörðun komi því ekki flatt upp á Bandaríkin. Í Katar eru tíu þúsund bandarískir hermenn en engu er spáð um hvaða áhrif það hefur á umsvif Bandaríkjanna við Persaflóa.
rtá