„Elsku góðhjartaða, hæfileikaríka, fyndna og fallega Perla Dís var tekin frá okkur langt fyrir aldur, fram aðeins 19 ára gömul.“
Þetta skrifar Ída Ragnarsdóttir, vinkona Perlu Dísar Bachmann. Perla Dís var aðeins 19 ára þegar hún lést. Eftir standa fjölskylda og vinir í sárum sem vita ekki sitt rjúkandi ráð. Vinir perlu Dísar vilja aðstoða fjölskylduna á þessum erfiðu tímum. Ída segir:
„Að standa undir kostnaði við útför barnsins síns eru áhyggjur sem á ekki að þurfa að leggja á fólk sem er að ganga í gegnum það erfiðasta sem hægt er að ganga í gegnum. Því höfum við vinirnir ákveðið í okkar veika mætti að óska eftir aðstoð og hefja söfnun. Það er að mörgu að huga og allt hjálpar jafnt stórt sem lítið.“
Munum að margt smátt gerir eitt stórt. Þeir sem geta aðstoðað fjölskylduna er bent á þetta reiknisnúmer – Munum að margt smátt gerir eitt stórt.
Reikningur: 135-26-2812
Kennitala. . 281275-5859
Ída Ragnarsdóttir segir: