Peningaþvætti glæpamanna

Öll refsverð brot samkvæmt íslenskum lögum geta verið frumbrot vegna peningaþvættis. Frumbrotið felst í því að fremja brot sem getur leitt af sér ólöglegan ávinning eða annan ágóða og hann er síðan reynt að þvætta. Frumbrot vegna peningaþvættis geta verið öll brot á almennum hegningarlögum en líka refsiverð brot á öðrum lögum þar sem brtotlegi hagnast eða nýtur ávinnings með einhverjum hætti.

Hægt er að sakfella bæði fyrir frumbrotið og peningaþvættið en dómstólar geta einnig komist að mismundandi niðurstöðu um hvort brotið fyrir sig. Sá sem er sekur um peningaþvætti þarf ekki að hafa átt þátt í frumbroti og er þá ekki ákærður fyrir það. Dæmi eru um að ákærði hafi verið sýknaður af ákæru um frumbrotið en verið sakleffldur fyrir peningaþvætti. Dómara þykir þá ljóst að ágóðinn eða ávinningurinn sem var þvættaður hafi verið illa fenginn þó ákværuvaldinu hafi ekki tekist að sanna nákvæmlega hvers eðlis frumbrotið var. Að sama skapi er mögulegt að sakfellla fyrir frumbrotið en sýkna af ákræuliðnum sem snýr að sjálfu peningaþvættinu.

Lagasetninger nú í undirbúningi vegna aðgerða réttvísinnar gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þá er undibúin lagasetning gegn spillingu og mútum.

rtá

Nánar ww.hersak.is  www.innanrikisraduneytid.is