Peningaþvætti: þrennt í varðhald

Tveir karlmenn og ein kona voru handtekin og úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald á föstudaginn vegna gruns um aðild að umfangsmiklu misferli með peninga.

Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari í samtali við Vísi en vefmiðillinn fjallar ítarlega um málið í dag. Heildarupphæðin sem um ræðir er í kringum 50 milljónir króna og teygir hluti málsins sig út fyrir landsteinana.

Samkvæmt heimildum Vísis snýr rannsóknin meðal annars að peningaþvætti með millifærslum á milli landa. Í liðinni viku mun ein slík færsla hafa þótt grunsamleg og verið flögguð í bankakerfinu. Í framhaldinu var lögreglu gert viðvart, bankareikningum viðkomandi lokað og fólk boðað til skýrslutöku.

Fólkið var svo úrskurðað í gæsluvarðhald á föstudaginn á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þau verða að óbreyttu í einangrun í viku eða fram á fimmtudag.