Peningar framyfir lífsgæði

Umhverfisráðherra spyr hvort skynsamlegasta leiðin sé ekki að hætta stóriðjustarfsemi í Helguvík.

Björt Ólafs­dótt­ir, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, segir að það sé verið að taka pen­inga fram yfir heilsu og lífs­gæði íbúa í Reykja­nesbæ þegar kemur að upp­bygg­ingu stór­iðju í Helgu­vík. 

Hún gagn­rýnir íviln­un­ar­samn­inga sem síð­asta rík­is­stjórn gerði við stór­iðju­fyr­ir­tæki harð­lega. „Þetta er alls ekki boð­legt. Þetta eru byrðar á herðum okkar sem við verðum að takast á við, og við gerum það ekki nema að taka erf­iðar ákvarð­anir hvað varðar fjár­magn­ið.“ Þetta kemur fram í nýjasta þætti Kjarn­ans á Hring­braut þar sem staða United Sil­icon og frek­ari stór­iðju­upp­bygg­ing í Helgu­vík er til umfjöll­un­ar. Þáttur er á dag­skrá í kvöld klukkan 21 í umsjón Þórðar Snæs Júlíussonar.

Björt segir þar að stjórn­mála­menn, bæði á sveit­ar­stjórn­ar­stigi og við rík­is­stjórn­ar­borð­ið, þurfi að fara að spyrja sig hvort sé mik­il­væg­ara heilsa og vel­ferð almenn­ings eða það að verja „vit­lausar fjár­fest­ing­ar“ sem ráð­ist hefur verið í á kostnað almenn­ings. „Ég held að fólk verði að spyrja sig hvort ekki sé komið nóg og hvort ekki sé skyn­sam­legra að hætta núna áður en við erum komin í dýpri súpu og í meiri vand­ræð­i.“

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar tekur undir með Björt en hann er einnig gestur Kjarnans í kvöld.