Paul ryan leiðtogi repúblíkana hættir

Paul Ryan, leiðtogi repúblíkana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings ætlar að stíga til hliðar og mun ekki sækjast eftir endurkjöri í þingkosningunum í nóvember.

Ryan tilkynnti starfslíði sínu þetta í morgun. Hann hefur þótt eiga fremur erfiða göngu sem leiðtogi repúblíkana síðan Trump tók við forsetaembættinu, en segist þó sáttur við að hafa staðið að endurskoðun skattakerfsins síðasta haust, sem hafi uppfyllt langþráðan draum.

Brotthvarf Ryans er talið geta aukið líkur demókrata á því að ná meirihluta í deildinni í kosningunum.