Patró: hús fauk af grunni í heilu lagi

Til marks um veðurhaminn sem næu gengur yfir Vestfirði er að mannlaust hús fauk í heilu lagi af grunni sínum í morgunsárið, en húsið var orðið gamalt og nokkuð illa farið að sögn lögreglunnar á Ísafirði.

Versta veðrið á landinu um þessar stundir er á Vestfjörðum og á Patreksfirði.  Nokkurt foktjón varð á Patró, en meðal annars fór brak úr húsinu sem fauk á tvö önnur hús í nágrenninu. Í þeim brotnuðu nokkrar rúður en engum hefur orðið meint af í hamaganginum.

Spáð er stormi á Vestfjörðum fram eftir hádegi og verður komið bærilegasta veður þar undir kvöld.