Páskavikan köld og vetrarleg

Íbúar suðvestanlands vöknuðu við snjókomu í morgun sem vitaskuld er engin frétt, en þeir munu þurfa að sætta sig við éljagang fram yfir helgina, því veðurkortin eru ótvíræð; fremur kalt verður í veðri og vindasamt vel fram í næstu viku og virðast engin veruleg hlýindi vera framundan þegar páskahátíðin fer í hönd. Norðan- og norðaustanáttir virðast ætla að verða ríkjandi alla næstu viku sem gætu, sakir vinds og ofankomu gert vegfarendum lífið leitt á þessum einum mestu ferðadögum ársins. Búist er við allt að 20 m/s þegar verst lætur næstu daga, en vindur verður vanalega heldur veikari.


Snjóþekja og hálka er víðast hvar á þjóðleiðum landsins og er einna greiðfærast um norðan- og austanvert landið hvað svo sem verður þegar éljagangur næstu daga fær í sig vind og steyting.