Páskahretið mætir með hvelli vestra

Færð á vegum verður ekki með skaplegasta móti á vestanverðu landinu á morgun að því er fram kemur í athugasemd veðurræðings á Veðurstofu Íslands en hann varar þar við kalfaldsbyl á Snæfellsnesi.

Hann segir að búast megi við snjókomu og skafrenningi á heiðarvegum á Snæfellsnesi og Vestfjörðum síðdegis og á Norðvesturlandi í kvöld, en þar af leiðandi geti færð gæti spillst á þeim slóðum. Kafaldsbylur verði í fyrramálið á Snæfellsnesi, Holtavörðuheiði og Borgarfirði. Þar stytti þó upp síðdegis en snjókoma verði þá á Suðurlandi og Suðvesturhorninu.