Hringbraut býður upp á glæsilega páskadagskrá með áherslu á íslenskt efni af bestu gerð.
Mannamál verður á sínum stað á Skírdag með óborgarlegu viðtali við Stuðmanninn Tomma Tomm. Þjóðbraut Lindu Blöndal ræðir sama dag við Katrínu Halldóru sem hefur slegið í gegn sem Ellý Vilhjálms í samnefndri sýningu og handritshöfundinn Ólaf Egil. Í Þjóðbraut er einnig rætt við unga konu sem lýsir átakanlegri stöðu sinni í brotnu velferðarkerfi. Heimildarmyndir setja svip sinn á Föstudaginn langa, náttúrulífsmyndin Friðland að Fjallabaki og heimildarmyndin Frá torfbæ á forsíðu Time. Rómaður Mannamálsþáttur með Bubba Morthens er á dagskrá laugardagsins og á Páskadag skoðum við Lakagíga með augum kvikmyndagerðarmannsins Péturs Steingrímssonar ásamt því að sýna spennandi heimildarmynd Hans Kristjáns Árnasonar um Vestur íslenskan njósnara og fyrirmynd bókanna um James Bond.
Loks leggjum við land undir fót í líflegum og forvitnilegum Ferðalagsþætti á öðrum degi páska þar sem heimurinn allur er á næsta leiti.
Skírdagur, 13. apríl:
20:00 Suðurnesjamagasín - Áhugaverðir og skemmtilegir þættir um samfélagið á Suðurnesjunum.
20:30 Mannamál - Mannamál með Sigmundi Erni. Gestur þáttar er stuðmaðurinn Tommi Tomm
21:00 Þjóðbraut - Þjóðfélagsmálin og góðir viðmælendur þar sem þáttastjórnandinn Linda Blöndal leiðir umræðuna.
Föstudagurinn langi, 14. apríl:
20:00 Friðland að Fjallabaki - Glæsileg náttúrulífsmynd um eitt fegursta svæði Íslands, víðerni á Torfajökulssvæði.
21:00 Frá torfbæ á forsíðu Time - Ævintýraleg saga Sveins Kristjáns Bjarnasonar, öðru nafni Holgers Cahill. Cahill átti farsælan og merkilegan feril í menningarlífi Bandaríkjanna og var meðal annars forstöðumaður Museum Of Modern Art (Moma) í New York.
Laugardagur, 15. apríl:
20:00 Mannamál, e - Endursýndur þáttur af Mannamáli. Fyrri og seinni hluti af skemmtilegu og opinskáu viðtali við Bubba Morthens þar sem hann ræðir á einlægan hátt um æviágrip sitt og tónlistarferil.
21:00 Þjóðbraut, e. - Þjóðfélagsmálin og góðir viðmælendur þar sem þáttastjórnandinn Linda Blöndal leiðir umræðuna.
Páskadagur, 16. apríl:
20:00 Lakagígar - Kvikmyndagerðamaðurinn Pétur Steingrímsson sýnir okkur Lakagíga með sínum augum.
21:00 Hinn íslenski James Bond - Áhugaverð og spennandi heimildarmynd eftir Hans Kristján Árnason. Ævisaga Vestur Íslendingsins Sir William Stephenson sem var njósnari í fyrra og seinna stríði og verður síðar fyrirmynd á persónunni James Bond í samnefndum bókum.
Annar í páskum, 17. apríl
20:00 Ferðalagið, e. - Frábær þáttur með Sigmundi Erni og Lindu Blöndal þar sem þau fara yfir stöðu ferðaþjónustu á Íslandi ásamt því að ræða við skemmtilega ferðalanga um þeirra ævintýri og reynsluheim.
21:00 Mannamál, e. - Endursýndur þáttur af Mannamáli með Sigmundi Erni.
21:30 Sonja Zorilla - Hans Kristján Árnason ræðir við Sonju Zorilla um ævi hennar og störf. Hún lifði viðburðaríku lífi, lagði ung af stað út í heim og dvaldist í Þýskalandi á valdatíma Hitlers og kynntist þar bæði verðandi fyrirmönnum og fórnarlömbum.
Hringbraut, íslensk dagskrárgerð af bestu gerð – um gleðilega páska .
Smellið HÉR til að skoða sjónvarpsútgáfu af páskadagskrá Hringbrautar.