Kristín Jónsdóttir, Íslendingur sem býr í París, segir að sjúkt kerfi ali af sér hatur. Mögulega megi skýra voðaverkin í nótt með því.
Í færslu á facebook lýsir Kristín þeim órétti sem fólk er beitt í borginni eftir hörundshætti og uppruna. Hún tekur sem dæmi nýlega bók þar sem segi að þeldökkir öryggisverðir sem sjá megi í dyrum óteljandi verslana í París séu ráðnir af óprúttnum aðila sem reki öryggisþjónustu og greiði pappírslausa starfsfólkinu sínu laun „svona sirka þegar honum sýnist og aldrei neitt sem nálgast lögbundin lágmarkslaun“.
„Ég hef alltaf passað mig á að vera kurteis við öryggisverðina, en síðan ég las bókina hefur mig langað til að faðma þá þegar ég geng framhjá þeim.
Ég get ekki hugsað það til enda, hvernig fólk út um allt í kringum okkur hér stendur vaktir, oft í algerum skítadjobbum, en svo er bara níðst á því og það lifir ekki ásættanlegu lífi á nokkurn hátt. Þetta er nútíma þrælahald,“ segir Kristín og tengir þessar hugrenningar sínar við voðaverkin í nótt þar sem a.m.k. 120 manns voru drepnir.
Kristín heldur áfram: „Stephen Fry tvítaði: Vive la France. En hvaða Frakkland viljum við að lifi? Hvers vegna erum við hissa á hatrinu? Sjúkt kerfi elur af sér hatursmenn þess. Alveg sjálft.
Ég óska einskis fremur en að hægt verði að umbylta kerfinu án svona viðbjóðslegra blóðsúthellinga. Ég hef ekki séð einn einasta blóðdropa á mynd, en ef ég loka augunum sé ég ekkert nema tætta líkama og blóð. Ég óska einskis fremur en að hægt verði að umbylta kerfinu á friðsamlegri hátt en þetta. En ég óska þess einlæglega að þessu kerfi verið umbylt og helst sem fyrst.“