Parísarfundurinn og áhrif hans

Á sjónvarpsstöðinni Hringbraut verður í kvöld, sumardaginn fyrsta, kl. 21:00 sýndur fyrsti þáttur af þremur um Parísarsamkomulagið og loftlagsmál og áhrif þeirra á Ísland og Íslendinga.

Þættirnir fjalla um áhrif Parísarsamkomulagsins á bæði fyrirtæki og heimili og til hvaða aðgerða við sem þjóð þurfum að grípa til að standa við þær skuldbindingar sem við höfum undirgengist.

Litið verður til samgangna, landbúnaðar og hafsins og lífríki þess. Þá verður fjallað um hvað gróðurhúsalofttegundir eru og hver áhrif þeirra eru. Hvaða möguleika höfum við og hvað er raunhæft að gert verði? Leitast verður við í þáttunum að varpa ljósi á bæði áhrif og afleiðingar ásamt því að skoða hvað við getum gert og til hvaða mótvægisaðgerða hægt er að grípa

Margir helstu sérfræðingar Íslands um loftlagsmál munu koma í þættina og ræða áhrifin og möguleikana ásamt því að ræða málið út frá margvíslegum sjónarhornum.

Þættinum er ætlað að varpa ljósi á þetta mikla og fyrirsjáanlega vandamál á mannamáli.