Í frétt RÚV kemur fram að íbúar Saint-Denis-hverfisins hafi vaknað við skothríð um hálf-fimmleytið í nótt að staðartíma, þegar lögregla réðist til atlögu með þungvopnaða 50 manna sérsveit úr hernum sér til fulltingis. Árásin hafi beinst gegn nokkrum grunuðum hryðjuverkamönnum sem héldu til í íbúð í fjölbýlishúsi. Til skotbardaga hafi komið og umsátursástand myndast um íbúðina. Að sögn greindu vitni frá mikilli sprengingu í bland við skothríðina. Að minnsta kosti þrír lögreglumenn munu hafa særst í átökunum.
Íbúum og vegfarendum sem reyndu að forvitnast um hvað gengi á var sagt að halda sig fjarri. Hermenn stóðu vörð meðfram aðalgötu Saint-Denise, í næsta nágrenni fjölbýlishússins. Á fréttavef Al Jazeera-fréttastofunnar segir að skothríðin hafi staðið í stundarfjórðung til að byrja með, síðan hafi orðið nokkuð lát á, áður en hún hófst að nýju stundarfjórðungi síðar. Stóð hún drjúga stund áður en yfir lauk. Stade de France-leikvangurinn, eitt af skotmörkum hryðjuverkamannanna, er í Saint-Denis, segir ennfremur í frétt RÚV um málið í morgun.