Áhorfendur Skúrsins á Hringbraut í gærkvöld fengu að líta Pontiac TransAm 1994 sem er sjálf 25 ára afmælisútgáfan og hreint út sagt glæsilegur gripur, stuðaranna á milli, en það voru aðeins framleiddir 2000 þúsund bílar af þessari gerð.
Þáttinn er nú hægt að skoða hér á vef stöðvarinnar, en þar segir af feðgunum Pálma Sævarssyni og og Sævari Péturssyni sem eignuðust þennan grip fyrir hálfgerða heppni. Sævar ætlaði aðeins að panta afturenda á ósköp venjulegan TransAm og bauðst seljandinn til að taka bara afturendann af þessum bíl og senda honum. Þegar Sævar sá hvers konar bíll þetta var, bað hann manninn um að senda bara allan bílinn. Þetta er að sögn Jóa Bachmann, umsjármanns þáttarins afar glæsilegt eintak og á eftir að vekja athygli á rúntinum í sumar.
Það er annars víða komið við í þættinum að þessu sinni - og spurt meðal annars; hvernig á að þrífa mótor að innan sem og endsneytistank á bílum? Þetta fá áhorfendur að vita hjá Ingó Linder, en hann er sölu- og þjónustustjóri fyrir LIQUI MOLY á Norðurlöndum. Hann gaf sér tíma með þáttagerðarmönnum til að fara yfir málið, en þess má geta það er mikil þörf á því að bíleigendur gefi þessum efnum meiri gaum varðandi viðhald bíla og um leið eyðslu og viðhald. Það er ótrúlegt hvað þetta efni kemur í veg fyrir, að sögn Jóa Bachmann, en umboðsaðili LIQUI MOLY á Íslandi er Stilling.
Í þættinum er einnig fjallað um drift, en vinsældir þess hafa aukist mikið hér á landi og má búast við fjörlegum keppnum í sumar. Þáttagerðarmenn komu við hjá Birgi Sigurðsyni eða Bigga Sig, en hann hefur verið að keppa í drifti síðustu ár og er nú að smíða hreint út sagt magnaðan BMW sem á að skila allt að 900 hestum fyrir sumarið.
Skúrinn verður endursýndur í dag - og það er eins gott að spenna beltin.