\"Nú falla öll vötn til Dýrafjarðar. Panamaskurðurinn orðinn að Dýrafjarðargöngum. Mesta hneyksli íslenskrar stjórnmálasögu snýst upp í þvarg um jarðgöng.\"
Þetta segir Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og pistlahöfundur á facebook vegna máls sem komið er upp og tengist Panamaskjölunum og Ásmundi Einari Daðasyni, þingflokksformanni Framsóknarflokksins.
Ásmundur Einar vill að Alþingi ljúki afgreiðslu samgönguáætlunar og fjárlaga næsta árs áður en kosið verði til Alþingis, til að tryggja fjármögnun Dýrafjarðarganga. Þetta kom fram á Rúv í gær.
Ásmundur Einar skrifaði pistil á vefsíðu sína þar sem hann bendir á að til standi að bjóða Dýrafjarðargöng út í haust þannig að framkvæmdir geti hafist á næsta ári. \"Hann segir að í ljósi umræðu um óvissu um framkvæmdina verði að klára samgögnuáætlun á Alþingi fyrir árin 2015 til 2018 þar sem ráðgert er að hefja framkvæmdir við Dýrafjarðargöng á næstu árum. Enn fremur verði Alþingi að ljúka fjárlagavinnu næsta árs áður en alþingiskosningum verði flýtt, svo fjármagn til framkvæmdanna verði tryggt,\" sagði í frétt Rúv.
Spurður um atkvæðaveiðar, þar sem Ásmundur er þingmaður NV-kjördæmis segir hann í samtali við Rúv: „Það liggur auðvitað ljóst fyrir að ég hef tjáð mig um þetta mál allt kjörtímabilið og ligg meðal annars með fyrirspurn um málið á ráðherra um hvenær framkvæmdin verði boðin út. Það þarf ekki annað en að fara og skoða atvinnulífið á Vestfjörðum til að sjá að þar er að byggjat upp laxeldi báðum megin sem er að skila milljarða gjaldeyristekjum og þetta er mál sem er ekki bara mikilvægt fyrir Vestfirðinga heldur þjóðarbúið í heild sinni.“
Fulltrúi stjórnarandstöðunnar, Svandís Svavarsdóttir, hefur kallað útspil Ásmundar Inga \"pólitískan vafning\".