Forsætisráðaherra Pakistan var settur af. Nawaz Sharif lætur af embætti eftir að ásakanir gegn honum um spillingu reyndust á rökum reistar. Gagnalekar Panama skjalanna urðu honum að falli. Hann er sagður hafa beðist lausnar. Enginn forsætisráðaherra í Pakistan hefur náð því að sitja út fimm ára kjörtímabil. Næst munu sakamál verða höfðuð gegn skyldmennum Nawaz Sharif vegna annarra spillingarmála sem Panama-skjölin afhjúpuðu.
Panama-skjölin eru gögn sem lekið var í apríl árið 2016. Þau eru stærsti gagnaleki sögunnar til þessa eða um ellefu milljónir skjala. Þeim var lekið af lögmannstofunni Mossack Fonseca sem er í Panama. Í skjölunum koma við sögu 72 núverandi og fyrrverandi ríkisoddvitar.
Kastljós var með sérþátt um Panama-skjölin hinn 3.apríl 2016. Nokkrir eftirmálar urðu vegna Panama-skjalanna á Íslandi. Í fundust átta hundruð aflandsfélög sem tengjast sex hundruð Íslendingum.