Einn allra ástsælasti söngvari landsmanna til áratuga, Pálmi Gunnarsson var gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli á Hringbraut í gærkvöld og talaði þar jafnt um sérstæða æsku sína austur á fjörðum og ferilinn, sukkið, velgengnina og hégómann.
Þáttinn má sjá hér á hringbraut.is, en óhætt er að segja að Pálmi hafi þar talað af einlægni og hispursleysi um viðburðaríkt líf sitt og farsælan feril.
Pálmi er fæddur og alinn upp á Vopnafirði sem um og upp úr miðri síðustu öld var afskekkt og einangrað sjávarpláss. Hann segist ekkert endilega hafa átt að fæðast, algert örverpið, mammam komin langt á fimmtugsaldur og pabbinn það veikur að Pálmi um gekkst hann lítið sem ekkert.
Hann er skírður eftir þremur systrum móður sinnar sem drukknuðu með föður sínum við heyflutninga á báti í Seyðisfirði á kyrrum sjó í júlí, nokkru áður en Pálmi fæddist, en stelpurnar voru 9, 11 og 13 ára þegar þessi vofveiflegi atburður gerðist, en fyrir vikið heitir söngvarinn Helgi Pálmi Aðalsteinn.
Hann lýsir lífinu eystra af innsæi sagnameistarans - en oft var svo þröngt í búi á heimili hans að ekkert var þar að borða - og þá ekki síður árunum þegar hann kom suður og byrjaði að spila í Röðli með hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar sem var hörkuvinna og bætti þar ekki úr skák að Pálmi var helst til djarfur þegar hann lýsti því hvað hann gæti á bassa í atvinnumsókn sinni en fram að því hafði hann einkum og sér í lagi handleikið gítar.
Hann varð heimsfrægur á Íslandi á einni nóttu þegar hann lék Júdas í uppfærslu Pétur Gunnarssonar á Jesus Christ Superstar og þar með var teningunum endanlega kastað; sýningin gat í raun af sér þá dásemdarsveit sem Mannakorn eru og allt upp frá því hafa Pálmi Gunn og Maggi Eiríks verið samferða, en sá fyrrnefndi segir að þeir passi sig á því að taka sér reglulega hlé hvor frá öðrum til að halda sem bestu lífi í sambandi þessara langlífu rokkhunda.
Mannamál, persónuleg og einlæg eru á dagskrá Hringbrautar öll sunnudagskvöld klukkan 20:30.