Pálmi gunnarsson í blik úr bernsku

Pálmi Gunnarsson tónlistarmaður, er gestur þáttarins Blik úr bernsku, sem sýndur er á Hringbraut kl.21.00 á miðvikudagskvöldum. Pálmi ólst upp á Vopnafirði. Hann segir frá lífinu þar með móður sinni, en hann var langyngsta barnið í systkinahópnum. Í þætti kvöldsins segir Pálmi frá æskuheimilinu sem hvarf undir frystihús, frá prakkarastrikum, besta vini sínum Hafþóri, fyrstu hljómsveitinni í skóla og fjörinu sem fólk í því að stelast í bíó á kvöldin. Síðast en ekki síst, rifjar Pálmi upp veiðina á bryggjunni, því það var einmitt þar sem allir litlir strákar gátu verið kóngar.

Handrit og dagskrárgerð: Helgi Jónsson.